Allir aldurshópar – ein heild

Tomas Eli Gudmundsson • 20. febrúar 2026

Deildu:

Allir aldurshópar - ein heild

Í umræðum um stéttarfélög og réttindi launafólks er oft talað um ákveðna hópa: unga fólkið, barnafólk, fólk á miðjum aldri eða eldri félagsmenn. Stundum er jafnvel spurt: Hvaða hóp ætlar þú að leggja mesta áherslu á?


Svarið mitt er einfalt: Alla.


Við erum ekki sundurlausir hópar heldur ein heild. Við erum öll á sömu vegferð - bara á mismunandi stöðum hverju sinni. Og ef okkur tekst að hugsa um alla aldurshópa með virðingu og framtíðarsýn, þá erum við ekki bara að gera rétt gagnvart öðrum, heldur líka okkur sjálfum. Því ef allt fer vel, þá verðum við öll eldri.


Ungt fólk - traustur grunnur frá fyrsta degi

Ungt fólk sem stígur sín fyrstu skref á vinnumarkaði þarf ekki bara starf, heldur góða móttöku. Það skiptir sköpum að onboarding sé skýr, sanngjörn og mannleg. Að ungt fólk viti hver réttindi þess eru, hvert það getur leitað og að það finni að það sé hluti af stærra samhengi.

Ef fyrstu reynslur fólks af vinnumarkaði eru jákvæðar, byggðar á virðingu og stuðningi, þá eflir það bæði einstaklinginn og vinnumenninguna til framtíðar. Þar gegna stéttarfélög lykilhlutverki - ekki sem fjarlæg stofnun, heldur sem raunverulegur bakhjarl.


Fólk á miðjum aldri - jafnvægi og stöðugleiki

Fyrir marga er miðhluti starfsævinnnar sá tími sem er hvað krefjandi. Ábyrgð eykst, bæði í starfi og einkalífi. Fjölskyldulíf, húsnæði, fjárhagur og heilsa þurfa allt að haldast í jafnvægi.

Þar þarf stéttarfélag að standa vörð um sveigjanleika, sanngjörn kjör og raunhæfar lausnir sem styðja fólk í daglegu lífi. Ekki bara í orði, heldur í verki. Þetta snýst um að skapa rými þar sem fólk getur verið duglegt í starfi án þess að fórna heilsu sinni eða fjölskyldulífi.


Eldri félagsmenn - reisn, öryggi og virðing

Eldri félagsmenn hafa byggt upp vinnumarkaðinn eins og við þekkjum hann í dag. Þeir ruddu brautina, börðust fyrir réttindum og lögðu grunninn að þeim kjörum sem við njótum nú.

Við eigum að gera vel við þá sem á undan okkur komu. Tryggja að fólk geti lokið starfsferli sínum með reisn, viðunandi kjörum og öryggi. Að enginn þurfi að óttast efri árin, heldur geti horft til þeirra með ró og tilhlökkun.


Framtíðarsýn sem nær lengra

Stéttarfélag þarf að horfa lengra en fram að næstu kjarasamningum. Það þarf að byggja stefnu sem tekur mið af allri starfsævinni – frá fyrsta vinnudegi til síðasta.

Þegar við hugsum um alla aldurshópa sem eina heild, tökum við ábyrgð á framtíðinni. Við tryggjum samfellu, stöðugleika og traust. Við byggjum félag sem fólk vill tilheyra, alla ævi.

Það er sú sýn sem ég hef að leiðarljósi.


Gerum gott félag betra – fyrir alla, í dag og til framtíðar.


Recent Posts

Eftir Tomas Eli Gudmundsson 21. febrúar 2026
VR þarf framtíðarsýn - ekki bara næsta samning