Traustur talsmaður félagsmanna - með reynslu og ábyrgð
Ég býð mig fram til stjórnar VR með það að markmiði að standa vörð um réttindi félagsmanna og tryggja ábyrga ákvarðanatöku sem byggir á gegnsæi, langtímasýn og traustu samtali við félagsfólk.
Ég hef yfir tuttugu ára reynslu af trúnaðarstörfum og hef einnig setið í stjórn stéttarfélags. Í gegnum þau störf hef ég tileinkað mér gildi eins og heiðarleika, þor til að takast á við erfiðar spurningar og sterka trú á samvinnu sem lykil að árangri.




Ég hef alltaf lagt áherslu á að hagsmunir félagsmanna séu í forgangi - hvort sem það eru ungt fólk að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði, barnafólk að reyna halda jafnvægi eða eldri félagsmenn sem eiga skilið að ljúka sínum starfsferli með reisn.
Með opnu samtali, gegnsæi og ábyrgð vil ég tryggja að ákvörðunartaka í stéttarfélaginu og lífeyrissjóðum endurspegli raunveruleg sjónarmið félagsmanna og stuðli að réttlæti og öryggi fyrir alla.
Traust, gagnsæi og langtímahugsun fyrir félagsmenn
Um mig


Samfélagsleg áhrif með skýrum markmiðum
Ég hef alla tíð haft brennandi áhuga á réttindum launafólks og því að tryggja samfélagslegt réttlæti. Ég hef lagt mig fram um að skapa opinn umræðuvettvang innan félagsins og vinna að lausnum sem nýtast öllum - óháð starfsgrein, aldri eða bakgrunni. Fyrir mér skiptir máli að enginn sé skilinn eftir.
Stuðlum að samfélagslegum breytingum
Traustur fulltrúi félagsmanna með skýra sýn
„Tómas Elí hefur sýnt fram á óbilandi skuldbindingu við réttindi okkar og skýra framtíðarsýn.“

Hafðu samband
Sendu fyrirspurn eða ábendingu til mín til að ræða málefni sem skipta þig máli. Ég reyni að tryggja að öll skilaboð fái athygli og svar innan hæfilegs tíma.